Fylgstu með og lærðu um dýrlíf úr fjarlægð.  Ekki trufla dýralíf bara til að sjá betur. Hafðu með þér kíki ef þú vilt sjá betur. Vertu í hæfilegri fjarlægð þannig að þú hræðir ekki dýrin eða styggir. Stórir hópar ferðalanga valda meiri skaða á umhverfinu og geta truflað dýralíf. Því skaltu ferðast um í litlum hópum. Ef hópurinn er stór þá skaltu skipta honum upp í smærri hópa til að lágmarka áhrif.

Snöggar hreyfingar og hávaði er stressandi fyri dýr. Því skaltu venja þig á að ferðast hljóðlega og ef þú þarft endilega að vera með kveikt á símanum þínum hafðu hann þá á „án hljóðs”. Ekki snerta, nálgast eða fóðra villt dýr.

Tillitssamir ferðalangar fylgjast með villtu dýralífi úr fjarlægð, þeir gefa dýrunum gott svigrum til eðlilegra athafna og passa upp á að rusl og matarleifar verði ekki eftir þá. Munum að við erum gestir í ríki þeirra.