Hvað er Án Ummerkja?
Hæ! Hefur þú brennandi áhuga á útiveru og velferð jarðar? Við hjá Án Ummerkja viljum varðveita fegurð og undur náttúrunnar fyrir komandi kynslóðir. Skoðaðu vefsíðuna okkar og kynntu þér ábendingar og bestu starfsvenjur til að lágmarka fótspor okkar og halda náttúrunni óspilltri! Hvort sem þú ert vanur landkönnuður eða helgarflakkari þá höfum við eitthvað fyrir alla. Kynntu þér kennisetningar okkar og lærðu að ferðast án ummerkja.
Kennisetningar Án Ummerkja (Leave No Trace Principles) eiga rætur sínar að rekja til skilaboða bandarísku ríkisskógastofnunarinnar (US Forest Service) á áttunda áratugnum varðandi hvernig ætti að tjalda á svæðum í þeirra umsjá með sem minnstu hnjaski. Þar á bæ höfðu menn gert sér grein fyrir mikilvægi þess að setja fram samræmd skilaboð varðandi ferðahegðun á svæðum í umsjón stofnunarinnar. Fram að þeim tíma hafði hver stjórnandi um sig sjálfsvald um með hvaða hætti það væri gert. Það leiddi til misskilnings og óöryggis ferðalanga um hvaða reglur giltu í raun og veru á hverju svæði. Þ.e. það sem var ekki í boði á einu svæði var leyfilegt á öðru. Var því um mikið framfaraskref að ræða þegar þessi skilaboð og reglur voru samræmdar.
Frá árinu 1990 hefur sérstök stofnun, Leave No Trace Center for Outdoor Ethics (LNT), haldið utan um gerð fræðsluefnis og hófst þá samstarf við National Outdoor Leadership School (NOLS) um þjálfun leiðbeinenda og þróun kennsluefnis. Hlutverk þeirra er að stuðla að og vekja fólk til umhugsunar um ábyrga útivistarhegðun. Dagskráin byggir á sjö leiðbeinandi kennisetningum sem hvetja m.a. til skipulagningar og undirbúnings ferðalags til að minnka áhrif, „pakkaðu því niður og út“ hegðunar varðandi úrgang og tillitssemi við aðra gesti. Í dag er þessi dagskrá mjög útbreidd og hefur teygt anga sína út fyrir Bandaríkin. Sem dæmi má nefna að þjóðgarðar Bandaríkjanna (US National Park Service) nýta sér þessa dagskrá til að sporna við neikvæðum áhrifum ferðamennsku á útivistarsvæðum.