Merki Án ummerkja
Án ummerkja
1. kennisetning2. kennisetning3. kennisetning4. kennisetning5. kennisetning6. kennisetning7. kennisetning

Skipuleggðu og undirbúðu ferðina

Fyrsta kennisetningin er sú sem allar hinar hvíla á. Sá sem hefur kynnt sér svæðið, veit hvernig veðrið verður og er með réttan búnað á miklu auðveldara með að fylgja hinum sex: að velja tjaldstað sem þolir álag, taka ruslið með heim og halda sig á stígnum þegar rignir.

Undirbúningur snýst líka um öryggi. Á Íslandi getur veður breyst á skömmum tíma, vatnsföll vaxið á fáeinum klukkustundum og farsímasamband rofnað utan byggðar. Góð ferð byrjar því heima, löngu áður en reimað er á sig.

Í stuttu máli

  • Kynntu þér svæðið, veðrið og reglurnar áður en lagt er af stað.
  • Miðaðu ferðina við þann í hópnum sem hefur minnsta reynslu eða úthald.
  • Skildu eftir ferðaáætlun á safetravel.is og hafðu nauðsynjarnar tíu með.
  • Ákveddu fyrir fram hvenær þú snýrð við.
Fimm spurningar sem allur undirbúningur hvílir á1Hvert erum við að fara?Landslag, leiðir og reglur. Er svæðið friðlýst eða í þjóðgarði? Þar geta gilt sérreglur.2Hver erum við?Ferðin miðast við þann í hópnum sem hefur minnsta reynslu eða úthald.3Hvernig verður veðrið?Skoðaðu spá og viðvaranir dagana fyrir ferð og aftur rétt áður en lagt er af stað.4Hvað tökum við með?Búnað sem dugar ef ferðin dregst á langinn eða veður versnar.5Hver veit af okkur?Einhver utan hópsins veit hvert er farið og hvenær á að koma til baka.
Fimm spurningar fyrir hverja ferð

Handbók Leave No Trace lýsir undirbúningi í nokkrum skrefum, en í reynd má draga hann saman í þessar fimm spurningar (Leave No Trace, e.d.-a).

Hvers vegna skiptir undirbúningur máli?

Flest tjón sem ferðafólk veldur verður ekki af illum ásetningi. Það verður vegna þess að fólk vissi ekki betur, var illa búið eða lenti í aðstæðum sem það réð ekki við (Leave No Trace, e.d.-a). Sá sem er blautur og kaldur leitar skjóls þar sem hann getur, og sá sem villist dreifist um gróið land.

Úr heimildum: Leave No Trace bendir á að björgunaraðgerðir þar sem ökutæki eða margt fólk kemur við sögu geti haft veruleg áhrif á landið. Sá sem villist eða slasast hefur því áhrif á sjálfan sig, hópinn, þá sem leita og landið sjálft (Leave No Trace, e.d.-a).

Fjallareglurnar tíu

Íslenskir fjallaleiðsögumenn hafa lengi stuðst við óskráðar reglur sem gengið hafa á milli manna. Þær eru hvergi gefnar út sem slíkar, en draga saman reynslu sem margir hafa öðlast á erfiðan hátt. Hér eru þær eins og þær eru kenndar á námskeiðum Án ummerkja:

  1. Gerðu raunhæfa ferðaáætlun.
  2. Láttu vita af ferðum þínum, til dæmis með ferðaáætlun á safetravel.is.
  3. Farðu ekki í langar ferðir nema með þjálfun og haltu hóflegum hraða.
  4. Fylgstu með veðurspám og taktu mark á þeim.
  5. Snúðu við í tæka tíð.
  6. Ætlaðu þér ekki um of.
  7. Vertu viðbúin(n) því versta og hafðu nauðsynjarnar tíu með.
  8. Farðu ekki einn eða ein og haltu hópinn saman.
  9. Ef þú villist eða veður versnar: sparaðu kraftana og leitaðu skjóls.
  10. Taktu góða skapið með.

Reglurnar fjalla fyrst og fremst um öryggi, en þær tengjast umgengni beint. Sá sem snýr við í tæka tíð þarf ekki að tjalda á viðkvæmum stað í myrkri. Sá sem heldur hópnum saman kemur í veg fyrir að fólk dreifist um gróið land í leit að hinum.

Fimmta reglan er sennilega sú mikilvægasta og sú sem erfiðast er að fylgja. Það er erfitt að snúa við þegar tindurinn virðist innan seilingar eða langt hefur verið ekið að upphafsstað göngunnar. Þess vegna er gott að ákveða fyrir fram hvenær snúið verður við, til dæmis á tilteknum tíma dags eða ef vindur fer yfir tiltekið mark.

Ferðaáætlun og Safetravel

Slysavarnafélagið Landsbjörg rekur vefinn safetravel.is. Þar segir að fyrsta skrefið sem allir ferðalangar ættu að taka sé að skilja eftir ferðaáætlun hjá einhverjum sem getur brugðist við, tengilið sem er ekki sjálfur með í ferðinni. Í áætluninni koma fram dagsetningar, áætlaður heimkomutími, leið, næturstaðir, varaleiðir og fjarskiptabúnaður (Safetravel, e.d.-b).

Með Safetravel-appinu má senda staðsetningu sína til Neyðarlínunnar, 112, ef eitthvað kemur upp á (Safetravel, e.d.-c). Göngufólki er líka ráðlagt að skilja eftir miða í bílrúðunni um hvert farið var og hve lengi, og að íhuga að leigja neyðarsendi ef farið er inn á hálendið (Safetravel, e.d.-a).

Nauðsynjarnar tíu

Hugmyndin um nauðsynjarnar tíu er gömul í útivistarheiminum og Leave No Trace birtir sinn lista í handbók sinni. Á námskeiðum Án ummerkja er stuðst við lista sem er lagaður að íslenskum aðstæðum, með áherslu á fjarskipti, því víða utan byggðar er ekkert farsímasamband.

Nauðsynjarnar tíu fara með í hverja ferð, líka stutta1 · Kort og áttavitiog kunnátta til að nota þau. Síminn bætist við.2 · HnífurVasahnífur eða fjölnotaverkfæri.3 · Nesti og vatnMeira en þú áætlar að þurfa.4 · AukafötHlý föt, húfa, vettlingar, vind- og vatnsheld föt.5 · LjósHöfuðljós og aukarafhlöður.6 · SkjólÁlteppi, neyðarpoki eða tjald.7 · EldfæriKveikjari eða vatnsheldar eldspýtur, til neyðar.8 · SkyndihjálpSjúkrakassi og kunnátta til að nota hann.9 · SólvörnSólgleraugu og sólarvörn, líka á jöklum og í snjó.10 · FjarskiptiFullhlaðinn sími, hleðslubanki og neyðarsendir.
Nauðsynjarnar tíu · eins og þær eru kenndar á námskeiðum Án ummerkja

Undirbúningur sem dregur úr ummerkjum

Margt sem gert er heima, áður en lagt er af stað, skilar sér beint í minni ummerkjum á vettvangi:

Það sem gert er heima sparar landinu ummerkiHeima, fyrir ferðÁ vettvangiSkipuleggðu máltíðir og umbúðirMinni afgangar og minna ruslPoki fyrir rusl og salernisúrgangEkkert verður eftirPrímus í farangrinumEnginn eldur, minni hætta á gróðureldumVatnsheldir skór og legghlífarGengið í gegnum bleytuna, ekki fram hjáKunnátta á kort og áttavitaEngar vörður eða merki til að rata
Undirbúningur sem dregur úr ummerkjum

Gott er að taka matinn úr umbúðum heima og setja hann í margnota ílát eða poka. Þá fer minna rusl með í ferðina og minni hætta er á að eitthvað verði eftir. Sá sem kann að rata þarf heldur ekki að hlaða vörður eða skilja eftir merki á steinum, trjám eða með merkiborða (Leave No Trace, e.d.-a).

Hvenær og hvert?

Tímasetning og val á áfangastað skipta miklu máli. Á vinsælum stöðum á háannatíma, um helgar og á frídögum getur verið mikil umferð og þrengsli. Ef farið er í miðri viku eða utan háannar dreifist álagið og upplifunin verður oft betri. Stórir hópar eiga best heima þar sem eru salerni, merkt tjaldsvæði og stígar (Leave No Trace, e.d.-a).

Leave No Trace bendir á að forðast eigi útivist þegar stígar eru forugir eða jarðvegur gegnsósa, því þá eru skemmdir líklegri. Á Íslandi á þetta sérstaklega við á vorin, þegar klaki fer úr jörðu og jarðvegur er blautur og laus. Stundum er besti kosturinn að fara annað, velja leið á föstu undirlagi eða bíða þar til aðstæður batna.

Það borgar sig líka að kynna sér sögu staðarins. Því meira sem við vitum um svæðið, þeim mun ríkari verður upplifunin og þeim mun betur getum við sýnt heimafólki virðingu.

Algengar ranghugmyndir

  • „Þetta er bara stutt ganga, ég þarf engan búnað.“ Veður á Íslandi getur breyst á skömmum tíma. Jafnvel í stuttri göngu þarf hlý föt, vatn og fullhlaðinn síma.
  • „Síminn dugar sem kort.“ Rafhlaðan getur tæmst og samband rofnað. Kort og áttaviti, og kunnátta til að nota þau, eru öruggari grunnur.
  • „Að snúa við er að gefast upp.“ Að snúa við í tæka tíð er merki um góða dómgreind. Fjallið verður þarna næst.

Lærðu meira

Tengt efni: Réttur og skyldur · Má tjalda hvar sem er? · 2. kennisetning · safetravel.is

Heimildir

  • Leave No Trace (e.d.-a). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]
  • Safetravel (e.d.-a, e.d.-b, e.d.-c). [Heimildir úr heimildaskrá heftisins]