Úrgangur er líklega sýnilegasta ummerkið sem ferðafólk skilur eftir. Sælgætisbréf á stígnum, klósettpappír á bak við stein og sígarettustubbar á áningarstað spilla upplifun þeirra sem á eftir koma. Það getur líka skaðað dýr, mengað vatn og borið smit.
Lög um náttúruvernd taka af allan vafa: skylt er að gæta fyllsta hreinlætis og skilja ekki eftir úrgang í náttúrunni (lög nr. 60/2013, 17. gr.). Þriðja kennisetningin útskýrir hvernig þetta er gert í reynd. Hún nær líka yfir það sem flestum þykir óþægilegt að ræða: hvað á að gera þegar náttúran kallar og ekkert salerni er nálægt.
Í stuttu máli
- Taktu allt með til baka, líka matarleifar, ávaxtahýði og smárusl.
- Notaðu salerni. Úr því sleppir: salernispoki, og hola aðeins þar sem jarðvegur leyfir.
- Klósettpappír og tíðavörur fara með heim. Aldrei undir stein, aldrei í eld.
- Vaskaðu upp og þvoðu þér að minnsta kosti 60 metra frá vatni. Engin sápa í náttúrulaugar.
Taktu allt með til baka
„Taktu allt með til baka“ er þekkt regla í útivist. Allt sem fer með út í náttúruna fer með heim aftur, líka matarleifar, mylsna og umbúðir. Áður en haldið er af stað frá áningarstað eða tjaldstað er gott að líta yfir svæðið og tína upp það sem gleymst hefur (Leave No Trace, e.d.-a).
Smárusl gleymist auðveldlega: sígarettustubbar, horn sem rifin eru af umbúðum, appelsínubörkur, kaffikorgur og hnetuskeljar. Leave No Trace leggur til að hópurinn geri leik úr því að leita að slíku rusli áður en farið er.
Matarleifar eru ekki „náttúrulegar“ á þeim stað þar sem þær eru skildar eftir. Appelsínubörkur og bananahýði eru lengi að brotna niður í köldu loftslagi og draga að sér dýr. Í könnun meðal dagsgesta í Rocky Mountain-þjóðgarðinum taldi meirihluti svarenda, um 58%, í lagi að taka ruslið með sér en skilja matarleifar eftir (Taff o.fl., 2011). Það er algengur misskilningur.
Rusl á heldur ekki að brenna. Flest rusl brennur ekki til fulls og getur gefið frá sér eitraðar lofttegundir, og opin brennsla úrgangs er óheimil samkvæmt lögum (lög nr. 40/2015, 2. gr.).
Úr rannsóknum: Í bandarískri rannsókn var fylgst með 9.757 manns á 130 stöðum utandyra. Um 17% þess sem fólk losaði sig við endaði sem rusl á jörðinni, og 65% sígarettustubba. Fólk var líklegra til að henda rusli þar sem rusl var fyrir, en ólíklegra þar sem ruslatunnur voru nálægt (Schultz o.fl., 2013).
Rusl dregur að sér rusl. Sá sem tínir upp eitt sælgætisbréf sem aðrir hafa skilið eftir gerir meira en að fjarlægja það. Hann dregur úr líkum á að næsti gestur bæti öðru við.
Hvert á að fara á klósettið?
Saur sem ekki er gengið rétt frá getur mengað vatn og borið sjúkdóma, og hann spillir upplifun annarra. Þar sem jarðvegur er þunnur eða gisinn getur regn skolað honum beint í vatn (Leave No Trace, e.d.-a).
Sú lýsing á vel við um stóran hluta Íslands. Á hálendinu, á melum og í hraunum er jarðvegur víða þunnur eða enginn, og kalt loftslag hægir á niðurbroti. Kathleen Meyer, sem hefur skrifað þekktustu bókina um efnið, bendir á að jafnvel við bestu aðstæður geti saur verið meira en ár að hverfa, og að í kulda sé betra að taka hann með sér (Meyer, 2020).
Þetta er ekki bara vandi á afskekktum stöðum. Í ástandsmati Umhverfisstofnunar árið 2023 kom fram að við Skarðsvík í Snæfellsjökulsþjóðgarði væri „mikið skilið eftir af salernisúrgangi“ í hrauninu ofan vegar (Umhverfisstofnun, 2023). Þess vegna er mælt með þessari forgangsröð:
Á jökli getur saur borist með ísnum og komið fram neðar löngu síðar. Á Denali í Alaska hefur fjallgöngufólki verið skylt að taka saur með sér úr efstu búðum frá árinu 2006, og rannsóknir þar hafa sýnt að saurgerlar koma fram neðar á jöklinum og í vatnsföllum (Meyer, 2020).
Þvag, pappír og tíðavörur
Þvag. Þvag er lítið vandamál í samanburði við saur, en það á samt að fara fjarri vatni, tjaldstöðum og stígum. Best er að pissa á steina, sand eða möl frekar en á gróður, því sum dýr sækja í saltið (Leave No Trace, e.d.-a). Á fjölsóttum áningarstöðum verður lyktin hins vegar fljótt óþægileg, og þar er best að nota salerni.
Klósettpappír. Best er að taka notaðan pappír með sér í plastpoka. Aldrei á að brenna hann: það hefur valdið mörgum gróðureldum og pappírinn brennur sjaldan til fulls.
Tíðavörur. Dömubindi og túrtappar fara alltaf með heim, því þau brotna mjög hægt niður og geta dregið að sér dýr. Gott er að hafa lítinn poka með rennilás, ef til vill í ógagnsæjum poka, til að geyma notaðar vörur þar til komið er að ruslafötu.
Margir sem ferðast mikið hafa með sér lítið salernissett: poka með rennilás, litla skóflu, pappír, handspritt og tíðavörur ef þarf. Handspritt eftir salernisferð dregur úr smithættu.
Uppvask, sápa og tannkrem
Vatn sem notað hefur verið til að vaska upp eða þvo sér á ekki að fara í læki og vötn. Sæktu vatn í pott eða brúsa og vaskaðu upp að minnsta kosti 70 skref (um 60 metra) frá vatninu. Notaðu heitt vatn og litla eða enga sápu, síaðu matarleifar úr vatninu og dreifðu því víða. Það sem síast frá fer með ruslinu (Leave No Trace, e.d.-a).
Sápa og tannkrem geta haft áhrif á vatnsgæði, jafnvel þótt það sé sagt niðurbrjótanlegt. Þvoðu þér og burstaðu tennurnar fjarri vatni, svo að jarðvegurinn síi það. Sólarvörn og skordýrafæla berast líka í vatn þegar fólk baðar sig.
Þetta á beint við um náttúrulaugar. Þær eru vinsælar og oft litlar, og vatnið í þeim endurnýjast hægt. Þar á hvorki að nota sápu né sjampó.
Algengar ranghugmyndir
- „Appelsínubörkur er lífrænn, hann má skilja eftir.“ Matarleifar eru lengi að brotna niður í köldu loftslagi, þær eru sýnilegar og draga að sér dýr.
- „Það er í lagi að fela klósettpappír undir steini.“ Undir steini brotnar hann hægt niður og getur skolast í vatn. Taktu hann með þér.
- „Það má brenna ruslið á varðeldinum.“ Flest rusl brennur ekki til fulls, gefur frá sér eitraðar lofttegundir og skilur eftir leifar.
- „Það er alltaf best að grafa.“ Víða á Íslandi er jarðvegur þunnur, frosinn eða enginn og niðurbrot hægt. Þar er betra að taka úrganginn með sér.
Lærðu meira
Tengt efni: Viðkvæm náttúra Íslands · 2. kennisetning · 6. kennisetning
Heimildir
- Lög um náttúruvernd nr. 60/2013. Lög um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum nr. 40/2015.
- Leave No Trace (e.d.-a). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]
- Meyer, K. (2020). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]
- Schultz, P. W. o.fl. (2013). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]
- Taff, D. o.fl. (2011). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]
- Umhverfisstofnun (2023). [Heimild úr heimildaskrá heftisins]