Merki Án ummerkja
Án ummerkja
Göngufólk í röð upp hlíð við Hattver

Á Íslandi má fólk fara um landið og njóta náttúrunnar án þess að spyrja leyfis í hvert sinn. Þetta frelsi er ekki sjálfsagt. Í mörgum löndum er stór hluti landsins lokaður almenningi. Hér er það bundið í lög, en lögin tengja það um leið skyldu.

Á þessari síðu er farið yfir helstu ákvæði laga um náttúruvernd nr. 60/2013 sem snerta ferðafólk: hvert má fara, hvar má tjalda og hvað er bannað. Þetta er einföldun til fróðleiks, ekki lögfræðiráðgjöf, og í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum geta gilt sérreglur.

Í stuttu máli

  • Gangandi fólk má fara um óræktað land án leyfis, en um ræktað land aðeins með samþykki eiganda.
  • Réttinum fylgir skylda til að ganga vel um og sýna landeigendum tillitssemi.
  • Göngutjald má oftast nota, en fyrir húsbíl, hjólhýsi og fellihýsi utan tjaldsvæða þarf leyfi.
  • Akstur utan vega er bannaður og varðar refsingu.

Almannaréttur: frelsi og skylda

„Almenningi er heimil för um landið og dvöl þar í lögmætum tilgangi,“ segir í 17. gr. laga um náttúruvernd. Í sömu grein segir að réttinum fylgi skylda til að ganga vel um náttúru landsins. Rétturinn er líka eitt af markmiðum laganna (1. gr.).

Rétturinn og skyldan sem fylgir honumRétturinnÞú mátt …ganga um óræktað land án leyfisdvelja þar í lögmætum tilgangitjalda göngutjaldi, með skilyrðumfara á skíðum og sleðum án vélarhjóla og ríða á vegum og stígumfylgirSkyldanÞú átt að …ganga vel um náttúrunasýna landeigendum tillitssemifylgja merktum leiðum og loka hliðumtaka allt sorp og úrgang með þérsýna aðgát við búfé og varplöndLög um náttúruvernd nr. 60/2013, 17.–22. gr. Sérreglur geta gilt í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum.
Rétturinn og skyldan · skýringarmynd

Í 17. gr. eru skyldurnar taldar upp. Ferðafólk á að sýna landeigendum og öðrum rétthöfum fulla tillitssemi og fylgja merktum leiðum og stígum eftir því sem hægt er. Það á að fara um hlið og loka þeim á eftir sér, forðast að valda öðrum ónæði með hávaða og skilja ekki eftir sorp eða úrgang. Sérstaka aðgát á að sýna í nánd við búfé, varplönd fugla og veiðistaði.

Margt af þessu er nánast það sama og kennisetningarnar sjö segja. Munurinn er sá að kennisetningarnar eru leiðarljós, en þessi ákvæði eru lög.

Núgildandi lög leystu af hólmi eldri lög um náttúruvernd nr. 44/1999. Í aðdraganda þeirra var lagt til að styrkja almannaréttinn, safna reglunum um hann í einn kafla og skerpa á umgengnisskyldunni, til dæmis við tjöldun (Aagot V. Óskarsdóttir, 2011).

Hvar má ganga, hjóla og ríða?

Gangandi fólk má fara um óræktað land og dveljast þar án sérstaks leyfis. Það sama gildir um fólk á skíðum, skautum og öðru sambærilegu. Í byggð getur landeigandi þó takmarkað för um afgirt óræktað land með merkingum við hlið og göngustíga. Um ræktað land, svo sem tún, akra og nýskógrækt, þarf almennt samþykki eiganda (18. gr.).

Hjólreiðafólk og hestafólk eiga að fylgja vegum og stígum eins og kostur er. Bannað er að reka hross yfir gróið land þar sem það veldur eða getur valdið spjöllum, og ríðandi fólk á hálendinu á að hafa nægt fóður meðferðis (19.–20. gr.).

Hvar má tjalda?

Reglurnar um tjöldun ráðast af því hvort tjaldað er í byggð eða óbyggðum, við alfaraleið eða utan hennar, og hvort gist er í tjaldi eða bíl (22. gr.).

Má ég tjalda hér?jáneijánei, í tjaldií byggðí óbyggðumEr landið ræktað?tún, akur, nýskógræktGistirðu í húsbíl,hjólhýsi eða fellihýsi?Ertu í byggðeða í óbyggðum?Aðeins með leyfieiganda eða rétthafa landsins.Leyfi landeiganda þarfUtan þéttbýlis þarf leyfi til að gistautan skipulagðra tjaldsvæða. Útskotvið veginn eru ekki næturstaðir.Ein nótt, með skilyrðumVið alfaraleið, á óræktuðu landi, ef ekkerttjaldsvæði er nærri. Leyfi þarf nærri bæjum,fyrir fleiri en 3 tjöld eða fleiri nætur.Heimilt að tjaldaHefðbundnu viðlegutjaldi, bæði viðog utan alfaraleiðar, á eignarlandieða þjóðlendu.Gildir alltafGættu þess að valda ekki skemmdum.Landeigandi getur bannað tjöldun þarsem hætta er á tjóni (23. gr.).Einfölduð mynd af 22.–23. gr. laga um náttúruvernd nr. 60/2013. Sérreglur geta gilt í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum.
Má ég tjalda hér? · skýringarmynd

Í byggð má tjalda hefðbundnu viðlegutjaldi til einnar nætur á óræktuðu landi við alfaraleið, ef tjaldsvæði er ekki í næsta nágrenni. Leita þarf leyfis landeiganda áður en tjaldað er nærri bústöðum eða bæ, og alltaf ef tjöldin eru fleiri en þrjú eða gist er lengur en eina nótt. Í óbyggðum má tjalda hefðbundnum viðlegutjöldum, hvort sem er á eignarlandi eða þjóðlendu (22. gr.).

Landeigandi getur takmarkað eða bannað tjöldun þar sem veruleg hætta er á tjóni á náttúrunni. Hann má líka beina fólki á tjaldsvæði og taka gjald fyrir þjónustu (23. gr.). Á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum geta gilt sérreglur sem ganga framar almennu reglunum, og því er rétt að kynna sér hvað gildir áður en farið er þangað.

Húsbílar og ferðabílar eru algengur ferðamáti hér á landi, og um þá eru lögin skýr: „Utan þéttbýlis skal leita leyfis landeiganda eða annars rétthafa ef nota á tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi, húsbíla og annan sambærilegan búnað utan skipulagðra tjaldsvæða“ (22. gr.). Útskot og grasbalar við veginn eru því ekki næturstaðir nema landeigandi hafi leyft það.

Hópferðir

Sérstök ákvæði gilda um skipulagðar hópferðir. Þegar hópferð fer um eignarlönd í byggð, eða þar sem hún gæti truflað, á að hafa samráð við landeiganda. Ef gist er í tjöldum á að nota skipulögð tjaldsvæði eftir því sem hægt er (24. gr.). Ef þú ferðast með skipulögðum hópi er það ferðaskipuleggjandinn sem á að hafa samráð við landeigendur. Reglan skýrir þó hvers vegna hópar fara stundum aðrar leiðir eða gista á öðrum stöðum en einstaklingar.

Akstur utan vega

„Bannað er að aka vélknúnum ökutækjum utan vega,“ segir í 31. gr. laganna. Undantekning er akstur á jöklum og á snævi þakinni jörð utan þéttbýlis, ef jörð er frosin eða snjóþekjan traust og augljóst að ekki sé hætta á náttúruspjöllum. Heimilt er að leggja ökutæki bílbreidd frá vegi ef það veldur ekki náttúruspjöllum eða slysahættu. Aðrar undantekningar varða einkum landbúnað, björgun og aðra nauðsynlega vinnu. Brot gegn banninu varða refsingu (90. gr.).

Bannið á sér vistfræðileg rök. Vélknúin ökutæki valda meiri áhrifum en gangandi fólk og komast lengra á styttri tíma (Monz o.fl., 2010). Í sandi, mosa og votlendi geta hjólför sést árum saman og orðið að rofsárum. Sá sem ekur einu sinni utan vegar getur skilið eftir slóð sem næsti bílstjóri fylgir.

Úr rannsóknum: Í ástandsmati Umhverfisstofnunar árið 2023 voru Vigdísarvellir í Reykjanesfólkvangi einn þriggja staða sem talið var að væru í hættu. „Vigdísarvellir og Vigdísarvallarleið verða enn fyrir miklum skemmdum, ekki síst vegna aukins aksturs utan vega“ (Umhverfisstofnun, 2023).

Eldur og minjar

Tvö önnur svið laga skipta ferðafólk miklu. Lög nr. 40/2015 um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum banna að kveikja eld utan dyra ef hætta stafar af honum fyrir fólk eða hann getur valdið tjóni á landi, gróðri, dýralífi eða eignum. Samkvæmt reglugerð á aldrei að skilja við opinn eld óvaktaðan, og sinubrenna er óheimil (reglugerð nr. 325/2016). Fornleifar, þ.e. mannvistarleifar sem eru 100 ára og eldri, eru friðaðar og óheimilt er að raska þeim (lög nr. 80/2012). Nánar er fjallað um þetta í 4. og 5. kennisetningu.

Hvers vegna skyldan skiptir máli

Þegar almannaréttur var í undirbúningi í Skotlandi var kannað hvaða skilaboð fá fólk til að ganga vel um. Fólk fór frekar eftir reglum þegar ástæðan var útskýrð, og skilaboð virkuðu best sem næst stað og stund. Of margar reglur gátu haft öfug áhrif (Carter, 2001).

Úr rannsóknum: Í einni rannsókn sem Carter (2001) fer yfir fækkaði þeim sem gengu utan stíga úr 6,9% í 1,7% þegar skilti hótaði refsingu. Skýrandi skilti lækkuðu hlutfallið í um 3,5%, en tákn eitt og sér hafði engin áhrif. Refsiskilti virka þó aðeins ef refsingunni er framfylgt.

Þetta er hugsunin á bak við kennisetningarnar sjö. Þær eru ekki listi yfir bönn, heldur útskýra þær hvers vegna, svo að hver og einn geti tekið góðar ákvarðanir sjálfur.

Algengar ranghugmyndir

  • „Á Íslandi má tjalda hvar sem er.“ Rétturinn er bundinn skilyrðum. Í byggð þarf oft leyfi landeiganda, og utan þéttbýlis þarf alltaf leyfi hans til að gista í húsbíl eða hjólhýsi utan tjaldsvæða.
  • „Það er í lagi að aka aðeins út fyrir veginn ef maður fer varlega.“ Akstur utan vega er bannaður. Eitt hjólfar getur orðið að slóð sem aðrir fylgja.
  • „Almannarétturinn er bara réttur.“ Í lögunum fylgir réttinum skylda til að ganga vel um náttúruna og sýna landeigendum tillitssemi.

Lærðu meira

Tengt efni: Viðkvæm náttúra Íslands · 2. kennisetning · 7. kennisetning · Lög um náttúruvernd á althingi.is

Heimildir

  • Aagot V. Óskarsdóttir (ritstj.). (2011). Náttúruvernd: Hvítbók um löggjöf til verndar náttúru Íslands. Umhverfisráðuneytið.
  • Carter, C. (2001). Encouraging responsible behaviour related to the new public right of access (Scottish Natural Heritage Commissioned Report F00ACC06). Scottish Natural Heritage.
  • Lög um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum nr. 40/2015. https://www.althingi.is/lagas/nuna/2015040.html
  • Lög um menningarminjar nr. 80/2012.
  • Lög um náttúruvernd nr. 60/2013 (lagasafn, útgáfa 157b). https://www.althingi.is/lagas/nuna/2013060.html
  • Monz, C. A., Cole, D. N., Leung, Y.-F. og Marion, J. L. (2010). Sustaining visitor use in protected areas: Future opportunities in recreation ecology research based on the USA experience. Environmental Management, 45, 551–562. https://doi.org/10.1007/s00267-009-9406-5
  • Reglugerð um meðferð elds og varnir gegn gróðureldum nr. 325/2016.
  • Umhverfisstofnun. (2023). Ástandsmat áfangastaða innan friðlýstra svæða: Skýrsla 2023.

© Án ummerkja. Texti: Guðmundur Björnsson. Einföldun til fróðleiks, ekki lögfræðiráðgjöf.

Netnámskeiðið Ferðast án ummerkja

Námskeið fyrir almenning í fjórum hlutum, með handbók og gátlistum.