Hvað er að ferðast án ummerkja?
Flestir sem ganga utan stígs, skilja eftir rusl eða styggja fugla gera það ekki af illum hug. Óæskileg áhrif stafa oftast af þekkingarleysi, vanhugsaðri hegðun eða aðstæðum. Á þessari athugun byggir hugmyndafræðin sem á ensku kallast Leave No Trace og á íslensku án ummerkja.
Að ferðast án ummerkja þýðir ekki að engin spor sjáist eftir okkur. Það er ómögulegt. Markmiðið er að draga sem mest úr skaðlegum áhrifum á náttúru, dýralíf, menningarminjar og upplifun annarra, hvort sem þau sjást eða ekki.
Þar sem fólkinu fjölgaði
Hugmyndafræðin á rætur í Bandaríkjunum. Þar jókst útivist gríðarlega á sjöunda áratugnum, og heimsóknum í þjóðgarða fjölgaði úr 33 milljónum árið 1950 í 172 milljónir árið 1970 (Marion og Reid, 2001). Gróður tróðst niður, eldstæði skildu eftir sig brunasár og rusl safnaðist upp á vinsælum tjaldstöðum.
Stýrendur svæðanna brugðust fyrst við með reglum. Þeir komust þó að því að reglurnar dugðu ekki einar: flest tjón stafaði af þekkingarleysi en ekki ásetningi, og erfitt var að framfylgja reglum á stórum og afskekktum svæðum. Fræðsla var því talin vænlegri leið.
Frá bæklingum til alþjóðlegrar hreyfingar
- 1960–70Útivist margfaldast í Bandaríkjunum
- 1987„Leave No Trace Land Ethics“
- 1991Fyrsta Master Educator-námskeiðið
- 1994Leave No Trace, Inc. stofnað
- 2007Guðmundur kynnist Leave No Trace
- 2012Án ummerkja formlegur samstarfsaðili
- 2026Netnámskeið og handbók á íslensku
Leave No Trace starfar nú í meira en 96 löndum. Samtökin hafa átt þátt í að stofna systursamtök í Kanada, á Írlandi, í Japan, Kóreu og á Nýja-Sjálandi, en annars staðar vinna þau með samstarfsaðilum, leiðbeinendum og stofnunum (Leave No Trace, 2024).
Frá reglum til siðfræði
Kennisetningarnar eru ekki lög. Þær eru siðfræði: sameiginleg sýn á það hvað sé góð umgengni, sem hver og einn beitir eftir aðstæðum. Leave No Trace leggur áherslu á að það snýst um vitund og athafnir en ekki fullkomnun. Ef hver einasti ferðamaður gerði aðeins eitt til að draga úr áhrifum sínum væri ávinningurinn mikill.
Það skiptir máli því aðstæður á Íslandi eru aðrar en þar sem kennisetningarnar urðu til. Ráð sem eiga við í bandarískum skógi, til dæmis að safna sprekum í varðeld, eiga oft ekki við á íslensku hálendi. Kennisetningarnar standa, en útfærslan verður að taka mið af landinu og árstímanum.
Án ummerkja á Íslandi
Guðmundur Björnsson kynntist Leave No Trace árið 2007 og tók hugmyndafræðina strax upp í leiðsögn og ferðum um landið. Hún féll vel að íslenskum aðstæðum, þar sem náttúran er í senn stórbrotin og viðkvæm. Árið 2012 varð Án ummerkja formlegur samstarfsaðili Leave No Trace, og árið 2013 sótti Guðmundur fimm daga leiðbeinendanámskeið NOLS í Yellowstone í Bandaríkjunum. Síðan hefur Án ummerkja kennt hugmyndafræðina leiðsögunemum, ferðaþjónustufólki og almenningi.
Án ummerkja er nú samstarfsaðili (Community Partner) Leave No Trace og Guðmundur er vottaður leiðbeinandi á öðru stigi (Level 2 Instructor). Það þýðir að Án ummerkja má halda kynningar og námskeið í nafni Leave No Trace og senda samtökunum þátttökulista til að fá skírteini fyrir þátttakendur.
Um Guðmund Björnsson
Guðmundur er ferðamálafræðingur (MSc) frá Háskóla Íslands og leiðsögumaður frá Endurmenntun HÍ, með langa reynslu af leiðsögn og ferðalögum bæði hér heima og erlendis. Hann starfar sem aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur kennt í leiðsögunámi Endurmenntunar HÍ frá árinu 2015. Nánar um Guðmund og Án ummerkja á síðunni Um okkur.