Merki Án ummerkja
Án ummerkja

Um okkur

Án ummerkja kennir og kynnir Leave No Trace á Íslandi. Markmiðið er einfalt: að fólk geti notið íslenskrar náttúru án þess að skaða hana.

Hver erum við

Án ummerkja ehf. hefur verið íslenskur samstarfsaðili Leave No Trace frá árinu 2012. Við staðfærum kennisetningarnar sjö að íslenskum aðstæðum, höldum kynningar og námskeið og gefum út fræðsluefni, nú síðast netnámskeiðið og handbókina Ferðast án ummerkja.

Guðmundur Björnsson

Guðmundur er stofnandi Án ummerkja. Hann er leiðsögumaður og ferðamálafræðingur (MSc) og starfar sem aðjúnkt við Háskóla Íslands. Hann hefur kennt í leiðsögunámi Endurmenntunar HÍ frá árinu 2015 og hefur farið með þúsundir innlendra og erlendra ferðamanna um landið.

Virðinguna fyrir náttúrunni lærði hann ungur á ferðalögum með foreldrum sínum og afa, sem kenndi honum að skilja alltaf betur við en að var komið. Hann kynntist Leave No Trace á alheimsmóti skáta í Bretlandi árið 2007 og hefur síðan fléttað hugmyndafræðina inn í leiðsögn og kennslu. Hann er vottaður leiðbeinandi á öðru stigi (Level 2 Instructor).

Guðmundur segir frá ferðamennsku á hálendi Íslands á námskeiðinu í Yellowstone.
Guðmundur segir frá ferðamennsku á hálendi Íslands á námskeiðinu í Yellowstone.

Námskeiðið í Yellowstone

Árið 2013 sótti Guðmundur fimm daga leiðbeinendanámskeið NOLS í Yellowstone-þjóðgarði í Bandaríkjunum. Myndirnar sýna hvernig kennisetningarnar eru æfðar í verki. Smelltu á mynd til að stækka hana.

Mathieu Brown, prófessor við Prescott College í Arizona, kennir hvernig hreinsa á vatn úr lækjum Yellowstone.
Mathieu Brown, prófessor við Prescott College í Arizona, kennir hvernig hreinsa á vatn úr lækjum Yellowstone.
Öllum mat komið fyrir utan seilingar villtra dýra, ekki síst bjarna sem höfðu sést í nágrenninu sama dag.
Öllum mat komið fyrir utan seilingar villtra dýra, ekki síst bjarna sem höfðu sést í nágrenninu sama dag.
Tjaldstæði valið minnst 60 metra (200 fet) frá vatni.
Tjaldstæði valið minnst 60 metra (200 fet) frá vatni.
Utan stíga dreifir hópurinn sér svo ekki myndist ný slóð.
Utan stíga dreifir hópurinn sér svo ekki myndist ný slóð.
Á stíg er gengið í einfaldri röð.
Á stíg er gengið í einfaldri röð.

Um efnið á vefnum

Efnið byggir á fræðsluefni Leave No Trace, rannsóknum og reynslu okkar. Heimilda er getið neðst á hverri síðu. Allar ljósmyndir á vefnum tók Guðmundur Björnsson. Ábendingar eru vel þegnar á anummerkja@anummerkja.is. Afritun texta og mynda er óheimil nema með leyfi Án ummerkja.